Mexíkóski framherjinn Javier 'Chicharito' Hernandez verður frá keppni næstu vikurnar eftir að hafa meiðst á óvenjulegan hátt.
Chicharito datt niður stiga heima hjá sér og handleggsbrotnaði. Hann fór í kjölfarið í aðgerð í morgun.
Chicharito datt niður stiga heima hjá sér og handleggsbrotnaði. Hann fór í kjölfarið í aðgerð í morgun.
Chicharito verður því ekki með Bayer Leverkusen í fyrstu umferð í þýsku Bundesligunni um helgina.
Hinn 28 ára gamli Chicharito kom til Leverkusen frá Manchester United fyrir ári síðan en hann skoraði 17 mörk í Bundesligunni á síðasta tímabili.
Athugasemdir