Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   þri 25. ágúst 2015 16:30
Magnús Már Einarsson
Aston Villa vill fá Ljajic
Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur hafið viðræður við ítalska félagið Roma um kaup á Adem Ljajic.

Ljajic er 23 ára gamall en hann spilar framarlega á miðjunni.

Manchester United hafði áhuga á að fá Ljajic frá Partizan Belgrad árið 2009 en hætti við.

Ljajic fór í kjölfarið til Fiorentina og þaðan til Roma á átta milljónir punda árið 2013.

Á síðasta tímabili skoraði Ljajic átta mörk í 32 leikjum í Serie A.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner