Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   sun 26. mars 2017 17:30
Kristófer Kristjánsson
Lengjubikar kvenna: Sandra Stephany afgreiddi ÍBV
Sandra Stephany Mayor Gutierrez skoraði bæði mörk Þór/KA
Sandra Stephany Mayor Gutierrez skoraði bæði mörk Þór/KA
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
ÍBV 0 - 2 Þór/KA
0-1 Sandra Stephany Mayor Gutierrez ('7)
0-2 Sandra Stephany Mayor Gutierrez ('80)

Það var einn leikur á dagskrá í A-deild Lengjubikars kvenna í dag en þar mættust ÍBV og Þór/KA í Akraneshöllinni.

Það voru stelpurnar í Þór/KA sem höfðu betur og skelltu sér upp í þriðja sæti riðilsins með góðum sigri.

Sandra Stephany Mayor Gutierrez kom sínu liði yfir strax á 7. mínútu en hún var svo aftur á ferð, 10 mínútum fyrir leikslok, til að tvöfalda forystu Þór/KA og tryggja 0-2 sigur.

Sandra spilaði síðasta sumar með Þór/KA og gerði hún 15 mörk í 21 leik í deild og bikar.

Þór/KA endaði í 4. sæti Pepsi deildar kvenna í fyrra en ÍBV lenti í því fimmta.


Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner