Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   þri 26. desember 2017 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Að duga eða drepast í höfuðborginni
Mynd: Getty Images
Lazio tekur á móti Fiorentina í fyrsta leik 8-liða úrslita ítalska bikarsins.

Ítalski bikarinn er litinn alvarlegum augum þar í landi og því mikil eftirvænting fyrir viðureignina.

Fiorentina sló út Sampdoria í 16-liða úrslitum á meðan Lazio fór auðveldlega með Cittadella.

Lazio hefur átt mjög gott tímabil í ítölsku deildinni og er í meistaradeildarbaráttu. Fiorentina byrjaði illa en er búið að ná sér og er komið í evrópubaráttuna, tíu stigum eftir Lazio sem á leik til góða.

Leikur kvöldsins:
20:00 Lazio - Fiorentina
Athugasemdir
banner
banner