Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
„Markmiðið er að komast í umspil og fara upp“
Bestur í Mjólkurbikarnum: Töfrar gegn einu besta liði landsins
Haraldur Einar: Hefði ekkert verið hrikalegt að vera áfram í FH
Gaman að vera hluti af sérstökum díl í íslenskri knattspyrnu
Súrsæt tilfinning eftir sigur - „Getum betur og eigum að gera betur“
Varð aldrei stressaður - „Leikurinn gat farið hvernig sem er“
Hetja Garðbæinga: Þetta var helvíti laust en inn fór hann
Rúnar Páll kaldhæðinn: Ég fæ alltaf spjald - Elska þessa nýju línu
Rúnar: Viktor er markaskorari af guðs náð
Arnar: Erum búnir að misstíga okkur í tvígang og gerum það aftur hér
Gregg Ryder svekktur: Guy þarf að vera ofarlega á vellinum
Dóri skýtur á fyrrum lærisvein: Fannst Wöhlerinn dýfa sér
Leið eins og í Keanu Reeves mynd - „Serbinn þarf bara aðeins að róa sig“
Axel urðaði yfir Patrik - „Bara ástríða"
Damir: Ekki sama þegar einhver er að meiða liðsfélaga minn viljandi
Aron Elís um vítaspyrnudóminn: Hann rænir upplögðu marktækifæri og það er bara rautt spjald
Haddi: Við eigum mögulega að fá 2-3 víti
Arnar Gunnlaugs: Hann hefði örugglega getað dæmt fleiri víti
„Þetta er eiginlega nýtt sport sem maður þarf að venjast“
Brjálaður út í dómgæsluna - „Algjörlega úr takt við leikinn“
   mán 29. maí 2017 22:13
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Róbert: Við söknum Thaisu rosalega
Róbert þjálfari Grindvíkinga
Róbert þjálfari Grindvíkinga
Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson
Róbert Jóhann Haraldsson var að vonum svekktur eftir tap Grindavíkur gegn FH á heimavelli í kvöld.

„Ég er svolítið svekktur bara. Þetta er búið að vera frekar dapurt hjá okkur núna í síðustu leikjum," sagði Róbert.

Brasilíska landsliðskonan Thaisa hefur ekki verið með Grindavík í undanförnum fjórum leikjum vegna meiðsla og hafa allir leikirnir tapast.

„Við söknum Thaisu rosalega. Maður sér það í þessa fjóra leiki."

Þetta er annar heimaleikurinn í röð þar sem Grindavík fær á sig mark á annarri mínútu leiksins og þá skoruðu FH tvö mörk í upphafi seinni hálfleiks. Róbert er orðinn talsvert þreyttur á þessu.

„Það eru allir stemmdir og fara af stað og svo er maður sleginn í andlitið."
Athugasemdir
banner
banner
banner