Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25098 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR11.08.2025, 10:13

Fram fær öflugan liðsstyrk (Staðfest)

Emma Kate Young er gengin í raðir Fram, hefur fengið félagaskipti frá Filippseyjum og er komin með leikheimild fyrir leikinn gegn FHL á morgun. Emma þekkir vel til á Íslandi því hún lék með Grindavik í Lengjudeildinni í fyrra og spilaði tvo leiki þar gegn Fram.

FRÉTTIR10.08.2025, 20:23

Akpom valdi Ipswich (Staðfest)

Enski framherjinn Chuba Akpom er genginn til liðs við Ipswich frá Ajax á láni út tímabilið. Ipswich mun þurfa að kaupa hann fyrir sjö milljónir punda ef liðinu tekst að vinna sér sæti aftur í úrvalsdeildinni en liðið féll á síðustu leiktíð.

FRÉTTIR09.08.2025, 22:30

Chevalier frá Lille til PSG (Staðfest)

Franski markvörðurinn Lucas Chevalier er genginn til liðs við PSG frá Lille. Hann skrifar undir fimm ára samniing. Chevalier er 23 ára gamall og er uppalinn í Lille. Hann spilaði sinn fyrsta aðalliðsleik árið 2022. Hann var liðsfélagi Hákonar Arnars Haraldssonar hjá Lille.

FRÉTTIR09.08.2025, 20:04

Nunez til Al-HIlal (Staðfest)

Liverpool hefur staðfest að Darwin Nunez sé genginn til liðs við sádi-arabíska félagið Al-Hilal. Hann skrifar undir þriggja ára samning. Úrúgvæjinn gekk til liðs við Liverpool frá Benfica árið 2022. Hann lék 143 leiki og skoraði 40 mörk. Hann vann úrvalsdeildina og enska deildabikarinn með liðinu.

FRÉTTIR09.08.2025, 14:31

Hermansen til West Ham (Staðfest)

West Ham United hefur gengið frá kaupum á danska markverðinum Mads Hermansen en hann kemur til félagsins frá Leicester City.

FRÉTTIR09.08.2025, 10:19

Benjamin Sesko til Man Utd (Staðfest)

Manchester United hefur tilkynnt kaupin á slóvenska framherjanum Benjamin Sesko en hann kemur til félagsins frá RB Leipzig fyrir 73,7 milljónir punda.

FRÉTTIR08.08.2025, 23:01

Burnley kaupir Broja (Staðfest) - Indiana Jones myndband

Burnley hefur staðfest félagaskipti Armando Broja frá Chelsea og er hann annar leikmaðurinn sem félagið kaupir úr röðum Chelsea á tveimur sólarhringum eftir kaup á Lesley Ugochukwu í fyrradag.

FRÉTTIR08.08.2025, 19:00

Neto skiptir yfir til Botafogo (Staðfest)

Brasilíski markvörðurinn Neto er kominn aftur heim til Brasilíu þar sem hann gerir tveggja ára samning við Botafogo með möguleika á hálfs árs framlengingu.

FRÉTTIR08.08.2025, 12:25

Ndidi til Besiktas (Staðfest)

Leicester City hefur staðfest að félagið sé búið að selja miðjumanninn vinnusama Wilfred Ndidi til Besiktas í Tyrklandi. Kaupverðið er 8 milljónir punda. Hann hefur verið hjá Leicester síðan í janúar 2017 og vann FA-bikarinn og Samfélagsskjöldinn á tíma sínum hjá félaginu. Í yfirlýsingu Leicester segir að Ndidi hafi verið gríðarlega vinsæll meðal liðsfélaga, starfsmanna og stuðningsmanna. Ndidi er 28 ára og hefur leikið 66 landsleiki fyrir Nígeríu.

FRÉTTIR08.08.2025, 11:59

Galdur kominn í KR (Staðfest)

Galdur Guðmundsson er kominn með leikheimild með KR en hann er kominn til félagsins frá Horsens í Danmörku.

FRÉTTIR08.08.2025, 10:17

Guessand til Aston Villa (Staðfest)

Aston Villa hefur framkvæmt sín fyrstu stóru leikmannakaup í þessum glugga en sóknarmaðurinn Evann Guessand er kominn til félagsins frá Nice í Frakklandi. Þessi 24 ára Fílabeinsstrendingur er keyptur á 26 milljónir punda en sú upphæð gæti hækkað upp í rúmlega 30 milljónir eftir ákvæðum.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.