Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mið 01. janúar 2020 17:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho: Ég var dónalegur við hálfvita
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Tottenham, hefur tjáð sig um gula spjaldið sem hann fékk gegn Southampton í dag.

Southampton vann 1-0 og var það Danny Ings sem skoraði sigurmarkið.

Mourinho fékk gult spjald í seinni hálfleiknum þegar hann fór yfir að varamannabekk Southampton og virtist skoða eitthvað sem einn af aðstoðarmönnum Ralph Hasenhuttl var að skrifa niður á blað.

Mourinho segist hafa átt gula spjaldið skilið.

„Gula spjaldið var sanngjarnt vegna þess að ég var dónalegur. En ég var dónalegur við hálfvita," sagði Mourinho sem lenti greinilega eitthvað saman við manninn.


Athugasemdir
banner