Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 01. janúar 2021 08:30
Victor Pálsson
Everton lánar Pennington til Shrewsbury (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Everton hefur ákveðið að senda varnarmanninn Matthew Pennington til Shrewsbury og spilar hann þar út tímabilið.

Þetta staðfesti enska félagið í gær en Pennington er alls ekki inni í myndinni hjá Carlo Ancelotti og hans starfsfólki.

Pennington er 26 ára gamall en hann á að baki níu aðalliðsleiki fyrir Everton og komu þeir allir frá 2015 til 2017.

Pennington hefur oft verið lánaður til annarra liða og spilaði með Hull City í Championship-deildinni á síðustu leiktíð.

Shrewsbury leikur í þriðju efstu deild Englands og mun Pennington fá mun fleiri mínútur þar en á Goodison Park.
Athugasemdir
banner
banner
banner