Fotbolti.net
01.02.20 - 16:44
Ívan Guðjón Baldursson

Einkunnir Leicester og Chelsea: Rudiger maður leiksins

Einkunnir Leicester og Chelsea: Rudiger maður leiksins
Canon

Mynd: Getty Images

<i>Sky Sports</i> er búið að gefa leikmönnum einkunnir eftir 2-2 jafntefli Leicester og Chelsea í Meistaradeildarbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar.
Jonny Evans, Antonio Rüdiger og Callum Hudson-Odoi voru bestir á vellinum en það er Rüdiger sem fær nafnbótina maður leiksins, enda skoraði miðvörðurinn bæði mörk Chelsea í leiknum.

Þýski varnarjaxlinn sinnti varnarvinnunni einnig af miklu ágæti og fékk gott hrós frá Frank Lampard að leikslokum. Bæði mörkin skoraði hann með skalla eftir föst leikatriði.

Heimamenn voru betri í síðari hálfleik en James Maddison og Jamie Vardy náðu ekki að hafa veruleg áhrif á leikinn.

Leicester er í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar, átta stigum á undan Chelsea sem er í fjórða sæti.

Leicester: Schmeichel (6), Pereira (7), Soyuncu (7), Evans (8), Chilwell (7), Barnes (7), Choudhury (7), Tielemans (7), Maddison (6), Perez (7), Vardy (6).

Chelsea: Caballero (6), James (7), Rudiger (8), Christensen (7), Azpilicueta (6), Kante (7), Jorginho (6), Pedro (6), Mount (7), Hudson-Odoi (8), Abraham (7).
Varamenn: Willian (6), Kovacic (6), B

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.