Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 01. apríl 2021 19:49
Victor Pálsson
Gundogan eftir úrslitin óvæntu: Þetta var svo lélegt
Mynd: Getty Images
Ilkay Gundogan, leikmaður Þýskalands, var að vonum svekktur í gær eftir leik liðsins við Norður-Makedóníu í undankeppni HM.

Norður-Makedónía kom öllum á óvart í Þýskalandi og hafði betur með tveimur mörkum gegn einu.

Gundogan viðurkennir að frammistaðan hafi verið slæm og þurfa sumir að líta í eigin barm eftir tapið.

„Við megum ekki leyfa þessu að gerast. Þeir komust í vítateiginn hjá okkur svona tvisvar og við gerðum þeim auðvelt fyrir," sagði Gundogan.

„Við reyndum að skapa færi en skoruðum bara eitt mark. Hvernig við fengum á okkur þessi mörk var svo lélegt."

„Þegar við færðum boltann hratt þá litum við hættulega út. Andstæðingurinn lá til baka og við fundum ekki leið til að brjóta þá. Þetta voru vonbrigði."
Athugasemdir
banner
banner