Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 01. apríl 2021 23:12
Victor Pálsson
Segja að Aguero vilji spila áfram á Englandi
Mynd: Getty Images
Sergio Aguero, leikmaður Manchester City, vill spila áfram á Englandi þegar samningur hans við félagið rennur út í sumar.

Búið er að staðfesta brottför Aguero frá Man City en hann yfirgefur félagið eftir tíu ára dvöl í Manchester.

Samkvæmt Daily Mail þá vill Aguero ekki fara erlendis og mun reyna að halda ferlinum áfram í ensku úrvalsdeildinni.

Manchester United og Chelsea eru orðuð við framherjann sem er markahæsti leikmaður í sögu Man City.

Það má þó búast við að fjölmörg lið erlendis reyni við Argentínumanninn sem er 32 ára gamall.

Aguero á að baki 271 deildarleik fyrir Man City og skoraði í þeim 181 mark.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner