Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
banner
fimmtudagur 25. apríl
Mjólkurbikar karla
mánudagur 22. apríl
Besta-deild kvenna
sunnudagur 21. apríl
Besta-deild karla
Besta-deild kvenna
föstudagur 19. apríl
Besta-deild karla
þriðjudagur 16. apríl
Meistarar meistaranna konur
mánudagur 15. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 12. apríl
Besta-deild karla
þriðjudagur 9. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 8. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 5. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 1. apríl
Meistarar meistaranna
sunnudagur 31. mars
Enska úrvalsdeildin
föstudagur 29. mars
Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna
miðvikudagur 27. mars
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
þriðjudagur 26. mars
Umspilsleikur um EM sæti
U21 karla - EM 25 undankeppni
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
miðvikudagur 20. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
þriðjudagur 26. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
mánudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 24. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
laugardagur 23. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 22. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
fimmtudagur 21. september
Sambandsdeildin
miðvikudagur 20. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 19. apríl
Super League - Women
Brighton W 1 - 2 Everton W
Division 1 - Women
Paris W 0 - 1 Saint-Etienne W
Bundesligan
Eintracht Frankfurt 3 - 1 Augsburg
Bundesliga - Women
RB Leipzig W 1 - 0 Bayer W
Serie A
Cagliari 2 - 2 Juventus
Genoa 0 - 1 Lazio
Toppserien - Women
Lyn W 1 - 0 Lillestrom W
Úrvalsdeildin
FK Krasnodar 2 - 0 Fakel
La Liga
Athletic 1 - 1 Granada CF
Damallsvenskan - Women
Norrkoping W 2 - 2 Djurgarden W
Elitettan - Women
Umea W 1 - 0 Sunnana W
fös 01.apr 2022 12:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 12. sæti: Fram

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að nýliðar Fram muni enda í 12. sæti í Bestu deildinni í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Fram endar í neðsta sæti ef spáin rætist.

Lengjudeildarbikarinn á loft í fyrr.
Lengjudeildarbikarinn á loft í fyrr.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var mikill meðbyr með Fram í fyrra.
Það var mikill meðbyr með Fram í fyrra.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framarar í fyrsta sinn í efstu deild síðan 2014
Framarar í fyrsta sinn í efstu deild síðan 2014
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Átján sigrar og fjögur jafntefli
Átján sigrar og fjögur jafntefli
Mynd/Raggi Óla
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Indriði Áki er mættur aftur í efstu deild. Hann var þar síðast með Keflavík árið 2015.
Indriði Áki er mættur aftur í efstu deild. Hann var þar síðast með Keflavík árið 2015.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danny Guthrie tók slaginn með Fram í fyrra.
Danny Guthrie tók slaginn með Fram í fyrra.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kyle söðlaði um og fór í Víking.
Kyle söðlaði um og fór í Víking.
Mynd/Raggi Óla
Fred á leið í sitt fyrsta tímabil í efstu deild.
Fred á leið í sitt fyrsta tímabil í efstu deild.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hlynur Atli er fyrirliði Fram.
Hlynur Atli er fyrirliði Fram.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ?
12. Fram 17 stig

Um liðið: Fram er mætt aftur á meðal þeirra Bestu eftir að hafa fallið árið 2014. Fram var langbesta liðið í Lengjudeildinni í fyrra, fór taplaust í gegnum deildina, setti stigamet og var ljóst mjög snemma að liðið væri á leið upp. Síðast þegar Fram var uppi var liðið tveimur stigum frá því að halda sér uppi.



Þjálfari - Jón Sveinsson: Undir stjórn Nonna, sem tók við Fram fyrir tímabilið 2019, hefur gengi Fram verið upp á við á hverju ári. Tímabilið 2019 var liðið 7. sæti, 2020 var liðið markatölunni frá því að fara upp og í fyrra missti liðið einungis af átta stigum. Jón er einn leikjahæsti leikmaður í sögu Fram með 312 leiki fyrir meistaraflokk félagsins. Hann varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari og þrisvar sinnum bikarmeistari með félaginu á 9. áratugnum. Hann er dáður og dýrkaður innan félagsins, og hefur komið inn með jákvæða strauma sem þjálfari meistaraflokks karla. Aðalsteinn Aðalsteinsson og Þórhallur Víkingsson eru Nonna til aðstoðar.

Styrkleikar: Nýr heimavöllur þegar hann kemst í gagnið, það ætti að vera styrkleiki. Liðið hefur ekki náð að stilla upp sínu sterkasta liði í vetur og menn gætu haldið fast í þá trú að liðið geti ekki tapað þegar besta liðið kemur saman. Þjálfarinn og yfirvegun hans er styrkleiki og þá er hópurinn tiltölulega leikreyndur, leikmenn sem eiga marga leiki undir beltinu þó að þeir séu kannski fæstir í efstu deild. Breytingarnar á hópnum eru fáar og menn þekkja vel til liðsfélaganna.

Veikleikar: Missirinn í Kyle McLagan er svakalegur á pappírunum. Hann gerði alla í kringum sig betri, sem dæmi leit Gunnar Gunnarsson við hlið hans mjög vel út og átti sitt besta tímabil á ferlinum. Miðvarðaparið er augljós veikleiki á þessum tímapunkti. Framherjinn Þórir Guðjónsson hefur leyst stöðu miðvarðar í vetur en það eru kannski svona tíu á landinu sem hafa trú á því að það geti gengið í sumar.

Lykilmenn: Fred og Albert Hafsteinsson. Fred hefur undanfarin ár verið algjör lykilleikmaður í sóknarleik Fram. Hann vakti ekki jafnmikla athygli í fyrra þar sem liðið var í heild sinni frábært og frekar jafnt. Fred hefur skorað 26 mörk í 79 deildarleikjum frá komu sinni í Fram árið 2018. Albert átti frábært tímabil í fyrra, skoraði níu mörk í nítján leikjum og var að mörgum talinn besti leikmaður Lengjudeildarinnar.

Hlaðvarpsþátturinn Ungstirnin mælir með:
Tryggvi Snær Geirsson spilaði 16 leiki í fyrra í deild, þá alla sem hægri kantmaður í kerfinu 4-2-3-1. Hann er að mörgu leyti svipaður leikmaður og bróðir sinn Stefán Árni. Hann er með góða tækni á boltanum og getur farið framhjá mönnum þrátt fyrir að vera ekki með neinn gífurlegan hraða. Hann hefur ekki verið mikill markaskorari, á mikið inni í þeim málum en hann lagði upp slatta af mörkum í öflugu sóknarliði Fram þar sem mörk og stoðsendingar dreifðust á marga leikmenn.

Spurningarnar: Hver á að skora öll mörkin? Mun nýi framherjinn haldast heill? Kemur inn miðvörður fyrir mót? Eru bestu leikmennirnir nægilega góðir eða er gæðaskiptingin í hópnum of jöfn?

Völlurinn: Fram mun spila á nýjum velli, Framvellinum í Úlfarsárdal, þegar búið verður að leggja gervigrasið. Það er ekki ljóst hvenær það verður og líkur á því að fyrsti heimaleikur liðsins verði spilaður annars staðar. Aðstaðan við völlin er hin glæsilegasta en stærsta spurningamerkið er kannski hvar þeir sem heimsækja svæðið eiga að leggja ökutækjum sínum.

Fyrirliðinn segir - Hlynur Atli Magnússon
„Miðað við það sem hefur verið spáð í vetur, talað um að við höfum ekki fengið einhverja leikmenn og þar fram eftir götunum þá kemur þetta mér ekki á óvart - ég var ekki með hökuna í gólfið. Svo er það annað, ég tel að vð séum með nægilega góðan hóp til að halda okkur uppi. Við förum upp með glæsibrag í fyrra, höldum í flesta en það er svolítið imprað á því að við höfum misst einhverja leikmenn. Við höfum fengið einhverja leikmenn inn og ég held að stefnan sé að fá fleiri inn. Ég tel að við getum afsannað þessa spá og það er markmiðið okkar."

Komnir
Jannik Pohl frá Danmörku
Jesús Yendis frá Venesúela
Tiago Fernandes frá Grindavík

Farnir
Danny Guthrie
Kyle McLagan til Víkings R.
Haraldur Einar Ásgrímsson í FH

Fyrstu fimm leikir Fram:
20. apríl Fram - KR
25. apríl FH - Fram
2. maí Fram - ÍA
7. maí Stjarnan - Fram
12. maí Fram - Víkingur R.

Hin hliðin:
Gunnar Gunnarsson

Sterkasta byrjunarliðið að mati Fótbolta.net:


Aðrir leikmenn:
Þórir Guðjónsson - 7
Orri Gunnarsson - 10
Jökull Steinn Ólafsson - 11
Stefán Þór Hannesson - 12
Arnór Daði Aðalsteinsson - 16
Matthías Kroknes Jóhannsson - 18
Tryggvi Snær Geirsson - 20
Óskar Jónsson - 22
Már Ægisson - 23
Magnús Ingi Þórðarson - 24
Aron Kári Aðalsteinsson - 26
Sigfús Árni Guðmundsson - 27
Aron Snær Ingason - 32
Alexander Már Þorláksson - 33
Benjamín Jónsson - 34
Breki Baldursson - 37
Dagur Margeirsson - 38
Mikael Trausti Viðarsson - 40
Róbert Daði Sigurþórsson - 41
Stefán Orri Hákonarson - 42
Þengill Orrason - 43
Guðmundur Magnússon - 77

Spámennirnir: Aksentije Milisic, Brynjar Ingi Erluson, Egill Sigfússon, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafliði Breiðfjörð, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Tómas Þór Þórðarson og Úlfur Blandon
Athugasemdir
banner
banner