Fotbolti.net
01.04.23 - 11:22
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Klopp um Nunez: Héldum að það yrði í lagi með hann

Klopp um Nunez: Héldum að það yrði í lagi með hann
Canon

Mynd: Getty Images

Darwin Nunez framherji Liverpool byrjar á bekknum í dag þegar liðið heimsækir Manchester City í ensku úrvalsdeildinni.

Hann hefur verið að kljást við meiðsli á tímabilinu en hann var ekki með landslið Úrúgvæ í ný liðnu landsleikja hléi.

Jurgen Klopp stjóri Liverpool sagði fyrir stórleik dagsins að félagið hefði vonast til að Nunez yrði klár í slaginn. Hann missti hins vegar af tveimur æfingum í aðdraganda leiksins og kemst því ekki í byrjunarliðið í dag.

„Við héldum að það yrði í lagi með hann eftir viku en svo var ekki. Hann gat ekki æft fyrstu tvo dagana, þess vegna byrjar hann ekki," sagði Klopp.

Diogo Jota, Cody Gakpo og Mohamed Salah eru í fremstu víglínu hjá Liverpool í dag.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.