Síðari hálfleikur á Etihad er ný hafinn en staðan er 2-1 þar sem Mohamed Salah kom Liverpool yfir en Julian Alvarez jafnaði metin. Kevin de Bruyne kom City yfir strax í upphafi síðari hálfleiks.
Pep Guardiola fagnaði jöfnunarmarkinu af mikilli innlifun en Kostas Tsimikas og Athur, leikmenn Liveprool löbbuðu framhjá honum um leið og hann var hoppandi og skoppandi á hliðarlínunni.
Guardiola fagnaði vel og innilega í andlitið á þeim en Rio Ferdinand hjá BT Sport furðaði sig á viðbrögðum, já eða litlum viðbrögðum Liverpool mannana.
„Skil ekki af hverju Tsimikas hrinti ekki Guardiola," sagði Ferdinand.
A rollercoaster of emotions for Pep Guardiola so far... pic.twitter.com/JFMAFXLzLa
— Football on BT Sport (@btsportfootball) April 1, 2023
Athugasemdir