Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 01. maí 2021 12:40
Aksentije Milisic
Gary Martin kveður ÍBV og þakkar fyrir sig
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gary Martin gekk til liðs við Lengjudeildarliðið Selfoss í gær en þangað kom hann frá ÍBV.

Eins og allir ættu að vita var Gary Martin óvænt rekinn frá ÍBV í síðustu eftir að hafa tekið mynd af liðsfélaga sínum nöktum og sett inn á lokaða spjallrás leikmanna.

Gary Martin skrifaði undir tveggja ára samning við Selfoss en hann skrifaði á Twitter í dag þar sem hann þakkaði fólki fyrir tíma sinn í Vestmannaeyjum.

„Eftir tvö góð ár og 31 mark í 36 leikjum fyrir ÍBV þá er kominn tími fyrir næsta kafla...ég vil þakka öllum fyrir á eyjunni sem létu mér líða eins og heima hjá mér, ég eignaðist góða vini og takk fyrir að hafa mig," skrifaði Gary.


Athugasemdir
banner
banner