Víkingar halda þriggja stiga forystu í Bestu deildinni eftir að hafa unnið 5-1 sigur gegn Val á Hlíðarenda.
Óskar Borgþórsson fór á kostum og skoraði þrennu, Karl Friðleifur Gunnarsson var með mark og stoðsendingu og Sölvi Geir Ottesen er þjálfari umferðarinnar.
Óskar Borgþórsson fór á kostum og skoraði þrennu, Karl Friðleifur Gunnarsson var með mark og stoðsendingu og Sölvi Geir Ottesen er þjálfari umferðarinnar.
Luke Rae skoraði glæsilegt mark og var valinn maður leiksins þegar KR vann KA 5-3. Aron Sigurðsson skoraði tvö mörk og Halldór Snær Georgsson átti geggjaða vörslu og kom í veg fyrir að KA jafnaði í 4-4.
Kennie Chopart hélt sýningu þegar Fram vann Breiðablik 4-3 í stórskemmtilegum leik. Skoraði tvö mörk og hefði hæglega getað skorað fleiri. Erik Tobias Sandberg varnarmaður ÍA er í Sterkasta liðinu eftir 1-0 útisigur Skagamanna gegn FH-ingum.
ÍBV vann sinn fyrsta sigur í sumar þegar liðið vann óvæntan 6-1 sigur gegn Keflavík. Sigurður Arnar Magnússon er í úrvalsliðinu, Bjarki Björn Gunnarsson átti magnaðan leik og var með fjórar stoðsendingar og þá skoraði Róbert Elís Hlynsson tvö mörk.
Emil Atlason skoraði draumamark (sem sjá má hér fyrir neðan) þegar Stjarnan vann langþráðan sigur, 3-1 útisigur gegn Þór.
Óskar Borgþórs skoraði þrennu í sterkum sigri Víkinga! ???????? ?????? #bestadeildin pic.twitter.com/QZ3sNCvO7t
— Besta deildin (@bestadeildin) May 31, 2026
Aron Sig með frábært mark í sterkum sigri Vesturbæinga! ???? #bestadeildin pic.twitter.com/bGTRcUPrFQ
— Besta deildin (@bestadeildin) May 31, 2026
Frábær sigur Framara gegn Breiðablik! ?????????? #bestadeildin pic.twitter.com/ZVllcT4xkY
— Besta deildin (@bestadeildin) May 29, 2026
Emil Atlason með stórkostlegt mark gegn Þór! ???? #bestadeildin pic.twitter.com/EDyAQSRjBP
— Besta deildin (@bestadeildin) May 31, 2026
Fyrri úrvalslið:
11.05.2026 12:00
Sterkasta lið 6. umferðar - Galið og óhemju sókndjarft
04.05.2026 10:05
Sterkasta lið 5. umferðar - Vatnhamarinn í þriðja sinn
28.04.2026 09:00
Sterkasta lið 4. umferðar - Aron kominn með fast sæti
24.04.2026 08:00
Sterkasta lið 3. umferðar - KR í draumaferð til Eyja
18.04.2026 00:25
Sterkasta lið 2. umferðar - Krummi stórkostlegur
13.04.2026 00:10
Sterkasta lið 1. umferðar - Sautján ára á miðjunni með Gylfa









