Það voru 28 mörk skoruð í sjöttu umferð Bestu deildarinnar og Sterkasta lið umferðarinnar er gjörsamlega galið, það verður að viðurkennast. Það er óhemju sókndjarft.
KR-ingar halda áfram á sigurbraut en þeir unnu magnaðan 3-2 endurkomusigur gegn Stjörnunni í Garðabæ. Óskar Hrafn Þorvaldsson er þjálfari umferðarinnar.
Luke Rae var með mark og stoðsendingu í leiknum og Amin Cosic var hættulegasti maður vallarins og átti stoðsendingu í sigurmarkinu.
KR-ingar halda áfram á sigurbraut en þeir unnu magnaðan 3-2 endurkomusigur gegn Stjörnunni í Garðabæ. Óskar Hrafn Þorvaldsson er þjálfari umferðarinnar.
Luke Rae var með mark og stoðsendingu í leiknum og Amin Cosic var hættulegasti maður vallarins og átti stoðsendingu í sigurmarkinu.
Víkingar eru í öðru sæti, tveimur stigum á eftir KR, en þeir rúlluðu yfir Þór 6-0. Óskar Borgþórsson var magnaður, með tvö mörk og tvær stoðsendingar. Elías Már Ómarsson skoraði tvö mörk, Oliver Ekroth var öflugur í vörninni og Daníel Hafsteinsson á miðjunni.
Framarar halda áfram á flugi og eru þremur stigum frá Víkingi eftir 3-2 sigur gegn Val. Kennie Chopart heldur áfram að vera eins og gott rauðvín og var meðal markaskorara.
Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði og var valinn maður leiksins þegar KA vann 2-0 sigur gegn ÍBV. Annar sigur KA-manna í röð.
Gils Gíslason var maður leiksins með tvö mörk fyrir FH í 3-3 jafntefli gegn Breiðabliki og Alpha Conteh maður leiksins í öflugum 3-1 útisigri Keflavíkur gegn ÍA. Ásgeir Orri Magnússon stendur í marki úrvalsliðsins.
Ótruleg endurkoma Vesturbæinga! ???????? #bestadeildin pic.twitter.com/FAAru8T4J2
— Besta deildin (@bestadeildin) May 11, 2026
Gils Gíslason skoraði tvö mörk gegn Breiðablik! ???????? #bestadeildin pic.twitter.com/sYyt6Vr4l6
— Besta deildin (@bestadeildin) May 9, 2026
Fyrri úrvalslið:
04.05.2026 10:05
Sterkasta lið 5. umferðar - Vatnhamarinn í þriðja sinn
28.04.2026 09:00
Sterkasta lið 4. umferðar - Aron kominn með fast sæti
24.04.2026 08:00
Sterkasta lið 3. umferðar - KR í draumaferð til Eyja
18.04.2026 00:25
Sterkasta lið 2. umferðar - Krummi stórkostlegur
13.04.2026 00:10
Sterkasta lið 1. umferðar - Sautján ára á miðjunni með Gylfa
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Víkingur R. | 9 | 8 | 1 | 0 | 29 - 5 | +24 | 25 |
| 2. KR | 9 | 7 | 1 | 1 | 33 - 20 | +13 | 22 |
| 3. Fram | 9 | 6 | 2 | 1 | 25 - 16 | +9 | 20 |
| 4. Breiðablik | 9 | 4 | 3 | 2 | 22 - 15 | +7 | 15 |
| 5. Valur | 9 | 5 | 0 | 4 | 18 - 17 | +1 | 15 |
| 6. ÍA | 9 | 3 | 3 | 3 | 12 - 16 | -4 | 12 |
| 7. Keflavík | 8 | 3 | 2 | 3 | 11 - 12 | -1 | 11 |
| 8. KA | 8 | 3 | 1 | 4 | 9 - 10 | -1 | 10 |
| 9. Stjarnan | 9 | 2 | 1 | 6 | 15 - 21 | -6 | 7 |
| 10. Þór | 8 | 2 | 0 | 6 | 6 - 20 | -14 | 6 |
| 11. FH | 9 | 0 | 2 | 7 | 12 - 26 | -14 | 2 |
| 12. ÍBV | 8 | 0 | 2 | 6 | 8 - 22 | -14 | 2 |








