01.07.13 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Adam Maher til PSV (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hollenska stórliðið PSV Eindhoven hefur staðfest kaupin á Adam Maher, en hann kemur frá AZ Alkmaar.
Maher, sem er 19 ára gamall, skrifar undir fimm ára samning við PSV í dag eftir að hann hefur staðist læknisskoðun, en félagið staðfesti þetta í gær.
Þessi magnaði miðjumaður þykir einn sá efnilegasti í heiminum um þessar mundir, en hann kemur til með að leysa hlutverk Ola Toivonen, sem yfirgefur PSV í sumar.
Arsenal, Chelsea og Manchester City höfðu áhuga á leikmanninum, en hann ákvað að velja PSV. Hann er þá þriðji leikmaðurinn sem félagið fær til sín í sumar, en Jeffrey Bruma og Florian Jozefzoon gengu til liðs við PSV á dögunum.