Fotbolti.net
01.07.13 - 20:27
Ívan Guðjón Baldursson

Johan Djourou til Hamburg (Staðfest)

Johan Djourou til Hamburg (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennalandslið
Johan Djourou hefur verið lánaður til Hamburg sem fær kauprétt á leikmanninum næsta sumar.

Djourou er 26 ára gamall svissneskur miðvörður og var á láni hjá þýska félaginu Hannover frá janúar 2013 þar til í sumar.
,,Ég er mjög ánægður að allt sé komið á hreint, HSV er stórt félag með mikil gæði og frábæra stuðningsmenn,\" sagði Djourou við vefsíðu HSV.

,,Ég er viss um að þetta sé rétt skref fyrir ferilinn minn.\"

Oliver Kreuzer er yfirmaður íþróttamála hjá HSV og er mjög ánægður með nýja leikmanninn.

,,Johan var í forgangi því vörnin er mjög mikilvæg. Hann er góður leiðtogi og er hraður, góður í loftinu og mjög góður á boltanum.\"

Djourou kom til Arsenal árið 2003, aðeins 16 ára gamall, og á 144 leiki að baki fyrir félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.