Fotbolti.net
01.07.13 - 20:38
Daníel Freyr Jónsson

Paulinho til Tottenham (Staðfest)

Paulinho.

Paulinho.

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski landsliðsmaðurinn Paulinho mun yfirgefa Corinthians og ganga í raðir Tottenham. Þetta staðfesti brasilíska félagið nú í kvöld.
Þessi vistarskipti hafa legið í loftinu í þó nokkurn tíma, en Paulinho var lykilmaður í landsliði Brasilíu sem vann í gær Álfukeppnina með sigri á Spánverjum í úrslitaleik keppninar.

Yfirmaður íþróttamála hjá Corinthians, Roberto de Andrade, staðfesti í dag að Paulinho væri að fara frá félaginu.

,,Ég vill þakka Paulinho fyrir allt sem hann hefur afrekað hjá Corinthians. Við munum aldrei gleyma honum, þessari frábæru persónu sem hnan er,\" sagði De Andrade.

Sjálfur sagði Paulinho að hann muni snúa aftur til Corinthians á nýjan leik í framtíðinni.

,,Það er erfitt að segja eitthvað á svona stundum, en ég veit að þetta voru þrjú æðisleg ár á ferli mínum sem innihéldu marga titla,\" sagði Paulihno.

,,Það sem ég hef að segja við stuðningsmenn Corinthians, stjórnina og starfsólkið er að við sjáumst aftur fljótlega. Ég mun snúa aftur fljótt vegna alls þess sem þeir hafa gert fyrir mig.\"

,,Mín persónuleg afrek eru algjörleg félaginu að þakka. Corinthians verður í hjarta mínu alla mína ævi.\"

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.