01.07.13 - 16:00
Magnús Már Einarsson
Twitter - Ein af klökkustu stundum knattlífs

Atli Sigurjóns hélt upp á afmælið sitt.

Mynd: Twitter

Kevin-Prince Boateng í stuði á tónleikum með R. Kelly.

Mynd: Twitter

Atli Sigurjóns hélt upp á afmælið sitt.

Mynd: Twitter

Pepsi-deildin og Álfukeppnin eru efst á baugi í Twitter pakka dagsins.
Brynjar Kristmundsson leikmaður Víkings Ó.:
Þessi sigurtilfinning er helvíti hugguleg
Gunnar Sigurðarson, Gunnar á völlum:
Mögulega ein af klökkustu stundum knattlífs míns #takk #víkingur #ólafsvík #ungmennafélagið #ohhh
Rúnar Már Sigurjónsson leikmaður Vals:
Aldrei verið jafn feginn að það séu 2 vikur milli leikja núna!
David James leikmaður ÍBV:
Nærbuxur!
Elfar Freyr Helgason félagslaus:
Ekkert leiðinlegra en fréttir um einhver vafaatriði í fótboltanum, jafnast út yfir heilt season... hvar er samt Ásgeir í tölvulistanum?
Hjörtur Hjartarson leikmaður Víkings R.:
Vissulega gangur lífsins að þjálfarar séu látnir fara. Samt einhvernveginn leiðinlegra þegar að toppmenn eins og Palli Einars eiga í hlut.
Guðmundur Karl Sigurdórsson ritstjóri sunnlenska.is:
Þróttur er ekki að fara að falla (Staðfest) #fotbolti #kafteinninn #mijlkovic
Sigurbjörn Hreiðarsson í sjónvarpsþætti Fótbolta.net:
Man þegar Gummi Ben var frábær í Þór. Finnst vera léttur Gummi í Chuk. Stórhættulegur með mikla vision. Gerir algjöran gæfumun.#fotbolti
Viktor Örn Guðmundsson leikmaður FH:
á Ramos afmæli í dag? afhverju fór hann á punktinn?
Teitur Örlygsson körfuboltaþjálfari:
Spánn ekki lengur með besta fótboltalið í heimi. #Brazil #Neymar OleOleOleNeymarNeymar
Ágúst Örn Arnarson leikmaður Fjölnis:
Neymar floppar alveg bókað í evrópuboltanum #einmitt #haxmar #svindl
Guðmundur Benediktsson íþróttalýsandi á Stöð 2 Sport:
Þetta Neymar dæmi virkar alveg!
#ConfedsFinal

Kevin-Prince Boateng í stuði á tónleikum með R. Kelly.

Mynd: Twitter
