Fotbolti.net
01.07.13 - 20:10
Daníel Freyr Jónsson

Yaya Sanogo til Arsenal (Staðfest)

Yaya Sanogo.

Yaya Sanogo.

Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarliðið Arsenal hefur gengið frá samningum við hinn tvítuga Yaya Sanogo sem kemur til félagsins á frjálsri sölu frá Auxerre í Frakklandi.
Eru þetta fyrstu kaup Arsenal í sumar, en Sanogo er efnilegur framherji sem hefur leikið með yngri landsliðum Frakklands.

Í heildina skoraði hann 10 mörk í 21 deildarleik með Auxerre á undanförnum þremur árum, en hann hefur átt við mikil meiðsli að stríða og var samningur hans runninn út.

,,Sanogo er góð kaup fyrir okkur. Hann hefur sýnt að hann er efnilegur með frammistöðum sínum með Auxerre og einnig með U-20 landsliði Frakka. Okkur hlakkar til að Yaya komi til okkar og haldi áfram að þróa sig,\" sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal.

Ekki er gefið upp um hve langur samningur Sanogo er, annað en það að um langtímasamning hafi verið að ræða.

Heimild: Heimasíða Arsenal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.