Fotbolti.net
01.07.13 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Younes Belhanda til Dynamo Kiev (Staðfest)

Younes Belhanda til Dynamo Kiev (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Úkraínska stórliðið Dynamo Kiev hefur fest kaup á Younes Belhanda, en hann kemur frá Montpellier í Frakklandi fyrir 10 milljónir evra.
Belhanda, sem er 23 ára gamall, hefur verið lykilmaður í liði Montpellier undanfarin ár, en hann spilaði stórt hlutverk er liðið varð meistari fyrir ári síðan.

Mörg lið voru á eftir þessum frábæra leikmanni, en þar má nefna ensku liðin, Arsenal, Manchester United og Tottenham Hotspur, en skilaboð Belhanda voru skýr, að ef hann skildi fara frá Montpellier þá yrði það fyrir lið sem spilar í Meistaradeild Evrópu.

Það vekur því mikla athygli að hann hafi valið Dynamo Kiev sem mun ekki leika í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.