Nígeríski miðjumaðurinn John Obi Mikel hefur samið við Trabzonspor í Tyrklandi.
Hinn 32 ára gamli Obi Mikel gekk frá tveggja ára samningi í gær.
Hinn 32 ára gamli Obi Mikel gekk frá tveggja ára samningi í gær.
Obi Mikel lék síðast með Middlesbrough en hann spilaði 18 leiki í Championship deildinni síðari hluta síðasta tímabils.
Á sínum tíma var Mikel í tíu ár hjá Chelsea en hann fór þaðan til Tianjin TEDA í Kína.
Mikel er í augnablikinu staddur í Egyptalandi með landsliði Nígeríu þar sem Afríkukeppnin fer fram.
Athugasemdir