Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 01. júlí 2019 11:14
Magnús Már Einarsson
Ralph lestin á fullri ferð - Adams til Southampton (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Southampton hefur keypt framherjann Che Adams frá Birmingham á fimmtán milljónir punda.

Adams skoraði 22 mörk með Birmingham í Championship deildinni á síðasta tímabili.

Adams er 22 ára gamall en hann kom til Birmingham frá Sheffield United árið 2016.

Southampton kynnti Adams til sögunnar í dag með lestarmyndbandi þar sem lestarstjórinn var knattspyrnustjórinn Ralph Hasenhuttl.

Hér má sjá Ralph lestina á fullri ferð. Tjú, tjú!



Athugasemdir
banner
banner