Fotbolti.net
01.07.20 - 17:15
Magnús Már Einarsson

KR fær ástralskan miðjumann (Staðfest)

Úr leik hjá KR.

Úr leik hjá KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
KR hefur fengið ástralska varnarmanninn Angela R. Beard til liðs við sig fyrir átökin í Pepsi Max-deild kvenna í sumar.

Hin 23 ára gamla Angela hefur undanfarin ár leikið með Melbourne Victory í heimalandi sínu. Angela á að baki leiki með yngri landsliðum Ástralíu.
Allt lið KR er í sóttkví eftir að leikmaður Breiðablik greindist með kórónaveiruna í síðustu viku.

Vika er síðan KR og Breiðablik mættust í Pepsi Max-deildinni og leikmenn KR verða viku í sóttkví til viðbótar.

KR er án stiga eftir þrjár umferðir í Pepsi Max-deildinni en næsti leikur liðsins er fyrirhugaður þriðjudaginn 14. júlí gegn Stjörnunn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.