Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 01. júlí 2020 23:15
Ívan Guðjón Baldursson
Magnús Sverrir tekur fram skóna með Reyni S. (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magnús Sverrir Þorsteinsson, sem lék hátt upp í 300 keppnisleiki með Keflavík á sínum tíma, hefur tekið knattspyrnuskóna fram að nýju.

Magnús Sverrir hætti í fótbolta 2016 en hefur ákveðið að taka slaginn með Reyni sem leikur í 3. deild.

Magnús er fæddur 1982 og mun hjálpa Reynismönnum í toppbaráttu 3. deildar þar sem þeir stefna upp í næstu deild fyrir ofan.

Magnús lék fyrir Keflavík allan ferilinn að undanskildu einu sumri þegar hann skipti yfir til Grindavíkur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner