Fotbolti.net
01.07.24 - 21:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ronaldo brast í grát eftir að hafa klúðrað víti

Ronaldo brast í grát eftir að hafa klúðrað víti
Canon

Mynd: EPA

Það er enn marklaust í leik Portúgal og Slóveníu í 16-liða úrslitum á EM þegar um fimm mínútur eru eftir af framlengingunni.

Portúgal fékk vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks framlengingarinnar þegar Diogo Jota féll í teignum.

Cristiano Ronaldo steig á punktinn en Jan Oblak gerði sér lítið fyrir og varði spyrnuna.

Það var síðan flautað til hálfleiks í framlengingunni og það sást greinilega á Ronaldo að hann hafi verið svekktur þar sem liðsfélagar hans hugreystu hann því hann var í tárum sínum eftir að hafa klikkað á vítaspyrnunni.

Ronaldo hefur átt ansi erfitt uppdráttar á mótinu til þessa en hann á enn eftir að skora.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.