Fotbolti.net
01.07.26 - 14:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Byrjunarlið Englands og Kongó: Tuchel gerir þrjár breytingar

Rashford og Thomas Tuchel.

Rashford og Thomas Tuchel.

Canon

Mynd: EPA

David Ornstein, blaðamaður The Athletic, er einn af þeim sem segir frá því að þrjár breytingar verði á byrjunarliði Englands í dag frá leiknum gegn Panama í riðlakeppninni.

Uppfært 14:45: Byrjunarliðin hafa verið staðfest og eru tíðindin rétt.

England mætir Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó (DR Congo) í 32-liða úrslitunum í dag. Leikurinn hefst klukkan 16:00 og fer fram á Mercedes Benz leikvanginum í Atlanta.
Þeir Morgan Rogers og Bukayo Saka taka sér sæti á bekknum og inn fyrir þá koma þeir Declan Rice og Noni Madueke. Jarell Quansah glímir við meiðsli og Djed Spence kemur inn í hans stað. Marcus Rashford heldur þá sæti sínum á vinstri vængnum og Anthony Gordon er áfram á bekknum.

Byrjunarlið Englands
Pickford; Spence, Konsa, Guehi, O'Reilly, Rice, Anderson, Bellingham, Madueke, Rashford og Kane.

Ein breyting er á liði Kongó, Ngal'ayel Mukau kemur inn á miðjuna fyrir Cedric Bakambu.

Byrjunarlið Kongó
Mpasi, Masuaku, Tuanzebe, Mbemba, Wan-Bissaka, Sadiki, Moutoussamy, Mukau, Cipenga, Wissa, Mbuku.
Tuchel er að passa upp á Saka.

Tuchel er að passa upp á Saka.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.