Leon Goretzka leikmaður Bayern Munchen á innan við eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.
Manchester United og Real Madrid eru sögð hafa áhuga á hinum 26 ára gamla miðjumanni.
Hann skoraði fimm mörk og lagið upp önnur fimm í 24 leikjum í deildinni, hann kom einnig beint að fjórum mörkum í Meistaradeildinni.
Julian Nagelsmann, nýráðinn þjálfari Bayern Munchen vill halda Goretzka hjá félaginu.
„Ég er ekki nógu mikið inn í þessu til að geta sagt eitthvað. Að sjálfsögðu hef ég spjallað við hann um mín plön fyrir hann. Ég hef sagt honum að ég yrði glaður ef hann verður áfram og ég sé bjartsýnn að svo verður."
Athugasemdir