banner
   sun 01. ágúst 2021 18:30
Victor Pálsson
Mestar líkur á að Onana fari til Frakklands
Mynd: Getty Images
Það eru mestar líkur á að markvörðurinn Andre Onana sé á leið til franska liðsins Lyon í þessum sumarglugga.

Þetta herma heimildir L'Equipe í Frakklandi en Onana var lengi orðaður við Arsenal í byrjun sumars.

Leikmaðurinn hefur verið í banni eftir að hafa fallið á lyfjaprófi og mun aðeins kosta um sjö milljónir punda.

Samkvæmt nýjustu fregnum er Lyon nú að leiða þetta kapphlaup og er búið að ná samkomulagi við leikmanninn sjálfan.

Onana var til í að ganga í raðir Arsenal fyrr á þessu ári en þá var beðið eftir niðurstöðu frá FIFA sem að lokum stytti leikbann Onana sem má spila á ný í lok árs.
Athugasemdir
banner
banner