Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 01. ágúst 2022 14:00
Ívan Guðjón Baldursson
„Ekkert óeðlilegt" við að Ronaldo hafi yfirgefið Old Trafford fyrir lokaflautið
Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo var í byrjunarliði Manchester United sem gerði 1-1 jafntefli við Rayo Vallecano í æfingaleik í gær.


Ronaldo var skipt útaf fyrir Amad Diallo sem gerði svo eina mark Man Utd í leiknum.

Portúgalska stórstjarnan kláraði þó ekki að horfa á leikinn með liðsfélögunum heldur yfirgaf leikvanginn fyrir lokaflautið.

Man Utd segir „ekkert óeðlilegt" við að Ronaldo hafi farið fyrr heim af þessum æfingaleik. Leikmaðurinn birti svo mynd á Twitter í gærkvöldi þar sem hann sagðist ánægður með að vera kominn aftur í treyju Rauðu djöflanna.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner