Fotbolti.net
01.09.19 - 21:33
Þorgeir Leó Gunnarsson

Helgi Sig: Töluðum um að sýna meiri karakter og Fylkishjarta

Auglýsing
Helgi Sig: Töluðum um að sýna meiri karakter og Fylkishjarta
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Fyrri hálfleikurinn var ekki nógu góður af okkar hálfu,"</I> sagði Helgi Sigurðsson þjálfari Fylkis, eftir 4-3 tap gegn Breiðabliki í kaflaskiptum leik í Kópavogi í kvöld.

Blikar leiddu 3-0 í hálfleik en í síðari hálfleik var allt annað að sjá til Fylkismanna.

<i>„Við töluðum um það í hálfleik að sýna meiri karakter og Fylkishjarta. Við ákváðum að fara í 3-5-2 og pressa meira á þá. Við ætluðum að reyna að vinna seinni hálfleikinn og við gerðum það en því miður varð fyrri hálfleikurinn okkur að falli."</I>
Geoffrey Castillion var í miklu stuði í síðari hálfleiknum þar sem hann skoraði þrennu.

„Hann er búinn að vera mjög góður á þessu tímabili. Hann er kominn með níu mörk í deildinni og það hefur verið stígandi í þessu hjá honum. Hann kom seint inn í þetta og æfði ekki með neinu í liði í vetur. Hann er farinn að sýna hvers megnugur hann er og hann hefur verið frábær í undanförnum leikjum."

Lítið er eftir af mótinu en Helgi segist hafa áhuga á að stýra Fylkismönnum áfram á næsta tímabili.

„Mér líður mjög vel í Árbænum. Ég vil gera góða hluti fyrir þetta félag. Þetta er félag sem gott er að vinna fyrir og það er mikil samstaða. Ég er með eitt ár og við sjáum hvað verður, aðalatriðið er að við klárum þetta mót með stæl."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.