01.09.20 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Rakitic lækkar verulega í launum

Ivan Rakitic

Mynd: Getty Images

Ivan Rakitic

Mynd: Getty Images
Króatíski miðjumaðurinn Ivan Rakitic er að ganga í raðir Sevilla frá Barcelona en hann tekur á sig verulega launalækkun hjá Evrópudeildarmeisturunum.
Rakitic spilaði gríðarlega vel með Sevilla frá 2011 til 2014 en hann vann Evrópudeildina á síðasta tímabili sínu með liðinu áður en Barcelona keypti hann.
Króatinn hefur unnið allt sem leikmaður getur unnið með Barcelona en var ekki í myndinni hjá félaginu fyrir komandi leiktíð og ákvað hann því að stökkva á tilboð Sevilla.
Hann þénar 8 milljónir evra í árslaun hjá Barcelona en hefur samþykkt launalækkun til að ganga til liðs við Sevilla. Því mun hann þéna aðeins 3 milljónir evra.
Það er búist við því að hann gangi til liðs við Sevilla á næstu dögum en hann fór í læknisskoðun hjá félaginu í gær.