Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 01. september 2022 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Dawson á leið til Wolves - Bednarek til West Ham?
Craig Dawson fer til Wolves
Craig Dawson fer til Wolves
Mynd: EPA
Craig Dawson, varnarmaður West Ham, er að ganga til liðs við Wolves en þetta kemur fram í Athletic.

Það mun ýmislegt eiga sér stað á þessum ágæta gluggadegi en Wolves ætlar að bæta við sig varnarmanni.

Willy Boly er á leið til Nottingham Forest og ætlar Wolves að fá Craig Dawson inn í hans stað.

Viðræðurnar við West Ham eru komnar langt á veg og má gera ráð fyrir því að hann gangi í raðir félagsins síðar í dag.

West Ham ætlar þá að leita í smiðju Southampton. Félagið er í viðræðum við Southampton um að fá pólska varnarmanninn Jan Bednarek á láni út tímabilið.

Dawson og Bednarek voru báðir fastamenn í sínum liðum á síðustu leiktíð en Dawson er 32 ára gamall á meðan Bednarek er 26 ára gamall.
Athugasemdir
banner
banner
banner