Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 01. september 2022 00:02
Brynjar Ingi Erluson
Kristall Máni með skot á Blika - „Þeir seldu hann bara"
Kristall Máni Ingason
Kristall Máni Ingason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristall Máni Ingason, leikmaður Rosenborg í Noregi, skýtur létt á Breiðablik eftir 3-0 sigur Víkings í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld.

Víkingur er á leið í þriðja bikarúrslitaleikinn í röð eftir öruggan sigur á Blikum.

Þetta eru tvö bestu lið landsins sem hafa verið í harðri baráttu um bæði deild- og bikar á þessu tímabili.

Karl Friðleifur Gunnarsson, uppalinn Bliki, skoraði annað mark Víkings í kvöld og fagnaði með því að ögra liðinu og hlaupa fyrir framan bekk þeirra. Karl var á láni hjá Víkingum frá Blikum á síðasta tímabili áður en skiptin voru gerð varanleg fyrir þetta tímabil.

Kristall Máni, fyrrum leikmaður Víkings, skaut létt á Blika eftir sigurinn í kvöld.

„Karl Friðleifur Gunnarsson. Þeir seldu hann bara," sagði Kristall Máni í svari til Nikola Djuric.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner