Amrabat genginn til liðs við Manchester United (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Marokkóinn Sofyan Amrabat er genginn til liðs við Manchester United á láni frá Fiorentina út tímabilið.
Man Utd borgar 8,5 milljónir punda til þess að fá Amrabat á láni frá Fiorentina og svo á félagið þann möguleika að kaupa hann fyrir 21,4 milljónir punda.
„Það er mikill heiður að vera orðinn leikmaður Manchester United. Ég hef þurft að vera þolinmóður en ég er þannig að ég hlusta alltaf á hjartað mitt og nú er ég leikmaður draumafélagsins," sagði Amrabat við undirskriftina.
Amrabat sló í gegn með marokkóska landsliðinu á HM í Katar og hjálpaði liðinu alla leið í undanúrslit.





