Brennan Johnson til Tottenham (Staðfest)


Mynd: Tottenham


Mynd: Tottenham
Brennan Johnson er genginn til liðs við Tottenham frá Nottingham Forest. Hann gerir sex ára samning við félagið.
Kaupverðið er um 48 milljónir punda.
Johnson er 22 ára gamall sóknarmaður og er uppalinn hjá Forest. Hann lék 109 leiki fyrir félagið og skoraði 29 mörk. Hann var fastamaður í liðinu þegar það tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni fyrir síðasta tímabil.
Hann skoraði 16 mörk í Championship deildinni þegar Forest komst upp og skoraði svo átta mörk í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
We are delighted to announce the signing of Brennan Johnson! ????
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) September 1, 2023
Let's go, Brennan! ????
From a boy to a man. Forever one of our own.
— Nottingham Forest (@NFFC) September 1, 2023
Thank you for everything, Brennan ?? pic.twitter.com/WMvv4e3YMr





