Fotbolti.net
01.09.23 - 18:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Davy Klaassen til Inter (Staðfest)

Davy Klaassen.

Davy Klaassen.

Canon

Mynd: Inter

Hollenski miðjumaðurinn Davy Klaassen hefur fengið félagaskipti frá Ajax til Inter á þessum gluggadegi.
Inter fær leikmanninn á frjálsri sölu og skrifar hann undir tveggja ára samning á Ítalíu.

Klaassen er þrítugur en hann hefur lengst af á sínum ferli spilað með Ajax. Hann hefur í heildina spilað meira en 300 leiki fyrir félagið og gefið mikið af sér.

Hann var keyptur til Everton á Englandi árið 2017 en stóðst engan veginn væntingar þar. Klaassen hefur einnig leikið með Werder Bremen í Þýskalandi.

Hann fer núna til Inter sem ætlar sér að vera í baráttunni um ítalska meistaratitilinn á þessu tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.