Fotbolti.net
01.09.23 - 18:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Dodgson farinn frá Burnley (Staðfest) - Dyrnar opnar fyrir Maatsen

Dodgson farinn frá Burnley (Staðfest) - Dyrnar opnar fyrir Maatsen
Canon

Mynd: EPA

Chelsea hefur samþykkt lánstilboð frá Burnley í Ian Maatsen en fyrr í dag var leikmaðurinn ekki sagður spenntur fyrir því að fara frá félaginu.

Burnley greinir frá því að Owen Dodgson sé genginn til liðs við Barnsley á láni en Sky Sports telur að það opni dyrnar fyrir Maatsen.

Sagt var frá því í dag að Maatsen myndi hafna því að ganga til liðs við Burnley og ætli sér að berjast fyrir sæti sínu í liði Chelsea.

Talið er að Burnley myndi ekki leyfa Dodgson að fara nema að Maatsen myndi samþykkja að ganga til liðs við félagið.

Maatsen er vinstri bakvörður en hann var á láni hjá Burnley á síðustu leiktíð þar sem hann lék 39 leiki þegar liðið vann Championship deildina.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.