Fotbolti.net
01.09.23 - 16:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Evans aftur orðinn leikmaður Man Utd (Staðfest)

Evans aftur orðinn leikmaður Man Utd (Staðfest)
Canon

Mynd: Man Utd

Jonny Evans er búinn að skrifa undir eins árs samning hjá Manchester United og verður því hjá félaginu á komandi tímabili.

Þessi 35 ára miðvörður skrifaði undir stuttan samning í sumar til að geta tekið þátt í undirbúningstímabilinu
Samningur hans við Leicester rann út í sumar og fékk hann að æfa með United í kjölfarið. Ánægja var með komu hans og í kjölfarið fær hann samning.

Það er óljóst hvort að Evans verði með United þegar liðið mætir Arsenal á sunnudag. Raphael Varane er meiddur og sömu sögu er að segja af Luke Shaw og Tyrell Malacia. Varane og Shaw eru kostir í miðvarðastöðuna.

Evans lék á sínum tíma 198 leiki fyrir United áður en hann hélt til WBA. Núna átta árum síðar er hann mættur aftur til United. Hann hefur unnið úrvalsdeildina þrisvar með United, deildabikarinn tvisvar og Meistaradeildina einu sinni.

„Ég er hæstánægður að vera kominn til Manchester United, á stað sem ég hef alltaf litið á sem heimili mitt. Félagið og stuðningsmennirnir hafa mótað mig sem leikmann og einstakling frá því ég var 15 ára," sagði Evans við undirskrift.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.