Fotbolti.net
01.09.23 - 20:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Gravenberch til Liverpool (Staðfest)

Gravenberch til Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Liverpool

Hollenski miðjumaðurinn Ryan Gravenberch er genginn til liðs við Liverpool frá Bayern Munchen.

Gravenberch náði ekki að sanna sig í treyju Bayern en hann gekk til liðs við þýska félagið frá Ajax síðasta sumar.

Kaupverðið er allt að 45 milljónir evra. Leikmaðurinn verður í treyju númer 38 hjá nýju félagi.

"Ég er mjög ánægður að þetta sé loksins klárt," segir miðjumaðurinn.

Hann er fjórði miðjumaðurinn sem gengur til liðs við Liverpool í sumar á eftir Alexis Mac Allister, Domink Szoboszlai og Wataru Endo en Liverpool hefur þurft að endurnýja miðsvæðið eftir að Jordan Henderson og Fabinho yfirgáfu félagið í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.