Fotbolti.net
01.09.23 - 17:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Hudson-Odoi mættur til Nottingham Forest (Staðfest)

Hudson-Odoi mættur til Nottingham Forest (Staðfest)
Canon

Mynd: Nottingham Forest

Callum Hudson-Odoi er genginn til liðs við Nottingham Forest frá Chelsea. Þessi enski 22 ára gamli Englendingur kemur til liðsins fyrir 8 milljónir punda og gerir þriggja ára samning.

Hudson-Odoi þótti gríðarlegt efni á sínum tíma en honum hefur ekki tekist að standa undir því.

Hann lék með Leverkusen á láni á síðustu leiktíð þar sem hann lék 21 leik og skoraði eitt mark. Mögulega er þetta nýtt upphaf hjá honum hjá Forest.

„Þetta er risastórt fyrir mig að koma hingað og ég get ekki beðið eftir því að byrja. Þetta er nýr kafli fyrir mig," sagði Hudson-Odoi við undirskriftina.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.