Fotbolti.net
01.09.23 - 20:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jói útherji

Joao Cancelo í Barcelona (Staðfest)

Cancelo er mættur til Katalóníu.

Cancelo er mættur til Katalóníu.

Canon

Mynd: Getty Images

Barcelona hefur staðfest það að bakvörðurinn Joao Cancelo sé kominn til félagsins á láni frá Manchester City.
Barcelona hefur lengi verið að vinna í þessum félagaskiptum og þau eru loksins komin yfir línuna.

Bayern München reyndi fyrr í dag að fá Joao Cancelo aftur á láni frá City, en sú tilraun heppnaðist ekki þar sem leikmaðurinn vildi mest af öllu fara til Barcelona.

Cancelo er 29 ára portúgalskur bakvörður sem getur spilað bæði hægra og vinstra megin í bakverði.

Hann var lykilmaður hjá City áður en hann lenti upp á kant við Pep Guardiola, stjóra liðsins. Hann ætti að geta gert góða hluti fyrir Barcelona sem gekk einnig frá lánssamningi við landa Cancelo, Joao Felix, fyrr í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.