Fotbolti.net
01.09.23 - 20:22
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jói útherji

Joao Felix mættur til Barcelona (Staðfest)

Joao Felix mættur til Barcelona (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Joao Felix er genginn til liðs við Barcelona á láni frá Atletico Madrid.

Þessi 23 ára gamli Portúgali hefur dreymt um að spila fyrir Barcelona og segir í tilkynningu Barcelona að draumur hans sé orðinn að veruleika.

Felix hefur ekki verið í náðinni hjá Diego Simeone stjóra Atletico og var hann því sendur á lán til Chelsea á síðustu leiktíð. Hann lék 16 leiki fyrir Chelsea og skoraði 4 mörk.

Landi hans, Joao Cancelo, er einnig á leiðinni til félagsins á láni frá Manchester City.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.