Kolo Muani til PSG fyrir tæpar 100 milljónir (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Randal Kolo Muani er genginn til liðs við PSG frá Frankfurt. Hann gerir fimm ára samning við félagið. Kaupverðið er um 90 milljónir evra.
PSG og Frankfurt hafa verið í löngum viðræðum en það tókst að klára félagaskiptin í tæka tíð.
Kolo Muani ólst upp hjá Nantes en gekk til liðs við Frankfurt síðasta sumar. Hann sló í gegn í Þýskalandi en hann lék 46 leiki fyrir félagið og skoraði 23 mörk á síðustu leiktíð. Þá skoraði hann þrjú mörk í fjórum leikjum á þessari leiktíð fyrir félagið.
Þá var hann í landsliðshópi Frakklands á HM í Katar og skoraði í 2-0 sigri liðsins á Marokkó í undanúrslitunum.





