Lokonga til Luton á láni (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Albert Sambi Lokonga er genginn til liðs við nýliða Luton í úrvalsdeildinni á láni frá Arsenal.
Lokonga er belgískur en hann gekk til liðs við Arsenal frá Anderlecht sumarið 2021 en hann hefur ekki náð að sanna sig hjá Lundúnarliðinu.
Hann færði sig um set í Lundúnum á síðasta tímabili og spilaði á láni hjá Crystal Palace seinni hluta tímabilsins.
Þessi 23 ára gamli miðjumaður var mættur á Kenilworth Road heimavöll Luton í kvöld og sá sína menn tapa 2-1 gegn West Ham í mögnuðum leik.





