Luka Jovic til liðs við Milan (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Luka Jovic er genginn til liðs við AC Milan frá Fiorentina en hann gerir eins árs samning við félagið.
Jovic gekk til liðs við Real Madrid árið 2019 en náði ekki að sanna sig í hvítu treyjunni. Hann gekk til liðs við Fiorentina síðasta sumar á frjálsri sölu.
Þar spilaði þessi 25 ára gamli framherji 50 leiki á síðustu leiktíð og skoraði 13 mörk.
Milan er að missa framherja en Divock Origi er á leið til Nottingham Forest.
????? The pen has met the paper! ?????????
— AC Milan (@acmilan) September 1, 2023
#ACMQuest #SempreMilan pic.twitter.com/1AeYidThbU





