Fotbolti.net
01.09.23 - 22:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jói útherji

Mason Greenwood í Getafe (Staðfest)

Mason Greenwood.

Mason Greenwood.

Canon

Mynd: Getty Images

Spænska úrvalsdeildarfélagið Getafe hefur staðfest að Mason Greenwood sé kominn til félagsins á láni frá Manchester United út leiktíðina.
Greenwood var handtekinn í byrjun árs í fyrra og ákærður fyrir af lögreglu fyrir tilraun til nauðgunar og ofbeldi í garð kærustu sinnar. Málið var látið niður falla fyrr á þessu ári en þó telja margir að ljóst sé að Greenwood sé sekur um kynferðisofbeldi.

Man Utd tók ákvörðun um það - eftir mikla umhugsun - að leikmaðurinn yrði ekki áfram hjá félaginu þrátt fyrir ákærurnar hefðu verið felldar niður.

Greenwood, sem var á sínum tíma einn efnilegasti leikmaður í heimi, hefur ekki spilað fótbolta frá því hann var handtekinn en mun nú hefja nýjan kafla á Spáni.

Getafe er sem stendur í ellefta sæti spænsku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.