Nice riftir samningnum við Schmeichel (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Kasper Schmeichel hefur yfirgefið Nice en það hefur verið staðfest að hann hafi náð samkomulagi við félagið að rifta samningnum.
Þessi 36 ára gamli danski markvörður gekk til liðs við félagið síðasta sumar frá Leicester en hann hefur ekki verið inn í myndinni á þessu tímabili.
Félagið nældi í Marcin Bulka frá PSG og hefur Schmeichel ekki verið í hópnum hjá Nice í þremur fyrstu leikjum liðsins á tímabilinu.
Það er óvíst hvert næsta skref Schmeichel verður en hann hefur verið orðaður við FC Kaupmannahöfn í heimalandinu. Hann lék 36 leiki á síðustu leiktíð og hélt 11 sinnum hreinu.





